Send Page


Á Austurlandi finnurðu flest það sem gerir Ísland að einstökum stað í veröldinni og ef til vill aðeins meira.

Hrífandi náttúru frá jökli til strandar: víðáttumikla sanda og gróna dali með skóglendi, eyðifirði og vaxandi bæi, heitar laugar og tæra fjallalæki, fagra fossa og spegilslétta firði með hreinum fjörum.

Mannlíf og menning endurspegla fjölbreytni náttúrunnar og þjónusta við ferðamenn er stór þáttur í lífi íbúanna.

Hvort sem þú vilt veiða lax, skreppa í sund, skoða fugla, ganga á fjöll, borða góðan mat eða bara njóta þess að vera til og anda að þér tæru lofti norðurslóða þá geturðu gert það allt á Austurlandi.

Ein sérstaða Austurlands eru hreindýrin, Rangifer tarandus, sem þú sérð einungis hér á Austurlandi og þá helst á hálendinu og norðaustan við Vatnajökul og upp í fjöllum á Austfjörðum.  Þau eru fljót í ferðum en þú gætir komið auga á þau hvar sem er í dreifbýli á öllu Austurlandi.

 

Meira um Austurland