Veiði
Á Austurlandi er að finna falleg vötn og ár þar sem hægt er að veiða silung, bæði bleikju og urriða og lax.
Veiðileyfi eru á sanngjörnu verði og eru seld hjá veiðiklúbbum, á bóndabæjum, upplýsingamiðstöðvum og fleiri stöðum.
Það er einnig möguleiki á að fara á sjóstangveiði frá Austurlandi á vel útbúnum bátum þar sem hægt er að næla sér í þorsk eða ýsu og matreiða veiðina svo eftir á.
Austurland hefur einnig margt upp á að bjóða fyrir þá sem eru í skotveiði, hér er að finna gæsir, rjúpu, endur og margar aðra tegundir fugla sem má skjóta. Gæsaveiðar eru mikið stundaðar af heimamönnum og er mikið um góð gæsaveiðilönd á Austurlandi.
Hvergi á Íslandi er jafn mikil hefð fyrir rjúpnaveiði og á Austurlandi. Rjúpnaveiði kallar á mikla hreyfingu þar sem veiðin kallar á heilmiklar göngur. Það er mikið af sjófugli við strendurnar og hægt að veiða þar ýmsar tegundir fugla.
Hreindýraveiðar í óbyggðum hálendis Austurlands er mikil lífsreynsla. Hreindýraveiðar hafa verið stundaðar allan tímann sem hreindýrin hafa verið á landinu eða frá 18. öld. Þau eru eingöngu að finna á Austurhálendinu og er stofninn um 4000 dýr. Það gilda strangar reglur um hreindýraveiðar og er hreindýrakjöt talið með besta kjöti sem hægt er að fá á Íslandi. Nánari upplýsingar um hreindýraveiðar.