Send Page

Sund


Þegar ferðast er um Austurland þá er tilvalið að stoppa í einni af mörgum sundlaugum í fljórðungnum. Fá sér sundsprett eða bara slappa bara af í heita pottinum. Það eru sundlaugar í flestum byggðarkjörnum og eru þær bæði inni og útisundlaugar. Margar þeirra eru opnar allt árið en ekki allar. Flestar eru hitaðar með fersku og tæru jarðhitavatni en nokkrar eru hitaðar með öðrum hætti þar sem ekki er jarðhitavatn í öllum bæjum á Austurlandi. Margar sundlaugarnar eru notaðar sem kennslulaugar en hafa jafnframt upp á meiri þjónustu að bjóða eins og heita potta, gufuböð, ljósabekki. Við margar sundlaugarnar er einnig að finna líkamsræktarstöðvar fyrir þá sem vilja stunda frekari líkamsrækt.


Er hægt að hugsa sér eitthvað betra eftir erfiða göngu eða langa útiveru að skella sér í sundlaugarnar, heitu pottana eða gufuböðin til að endurnæra líkama og sál.


Frekari upplýsingar er að finna í þjónustu leit sem er að finna til vinstri á hverri vefsíðu.