Send Page

Söfn


Austurland hefur að geyma einstakt úrval af söfnum og setrum en það eru um 24 söfn og setur á Austurlandi sem bjóða upp á fjölda sýninga og menningarviðburði allt árið. Á Austurlandi finnur þú söfn sem eru tileinkuð menningu, sjóminjum, náttúru og skáldum og rithöfundum, einnig listasöfn og menningamiðstöðvar. Margar uppgerðar byggingar frá ýmsum tímum prýða svæðið og hafa verið varðveittar og eru margar þessara fallegu bygginga nýttar sem söfn eða menningarsetur.


Söfnin og setrin á Austurlandi eru mjög fjölbreytt, skemmtileg og mörg þeirra eru mjög sérstæð og einstök. Hægt er að finna allt frá Stríðsminjasafni, Tækniminjasafni, Steinasafni og Sjóminjasafni svo fátt eitt sé nefnt. Það ættu svo sannarlega allir að geta fundið safn við sitt hæfi á Austurlandi.


Frekari upplýsingar er að finna í þjónustu leit sem er að finna til vinstri á hverri vefsíðu.