Send Page

Siglingar


Siglingar á ám, jökulsárlóni eða á sjó eru eitt af þeim spennandi ævintýrum sem þú getur upplifað á Austurlandi. Það eru nokkrir einstakir staðir á Austurlandi þar sem þú getur notið lífsins á báti. Því ekki að slappa af og láta skipstjórann leiða þig áfram og sigla með þig á milli magnaðra staða. Staðir eins og Lagarfljótið á Fljótsdalshéraði þar er siglt í fallegu umhverfi héraðsins með skógi vöxnu landi í kring. Í þeirri ferð er aldrei að vita nema að Lagarfljótsormurinn frægi láti sjá sig og bjóði ferðamenn velkomna, en hann er skrímsli sem sagt er að búi í vatninu og hann hefur sést af og til í gegnum aldirnar. Einnig er hægt að sigla frá Djúpavogi út í Papey og skoða fagurt umhverfi henna og nærliggjandi eyja. Það er mjög mikið fuglalíf í og í kringum eynna og mikið af sel sem eru mjög forvitnir um ferðamenn. Sannarlega ógleymanlegar ferðir fyrir náttúruunnendur, þá sem hafa áhuga á fuglaskoðun og alla sem hafa gaman af ævintýrum.


Jökulsárlón á Suð-Austurlandi er einn mest heimsóttustu stöðum á Íslandi og er það ekki að undra. Stórir jakar sem hafa brotnað frá jöklinum fljóta um í lóninu eru fljótandi listaverk. Sannarlega frábær ferðamannastaður á heimsvísu og einstakt að geta siglt um á milli jakana og notið sérstæðs útsýnis og margbreitilegra listaverka sem koma frá jöklinum. Þessar bátferðir og fleiri sem eru í boði á Austurlandi eru einstakar og myndu gera heimsókn hvers ferðamanns ógleymanlega.


Frekari upplýsingar er að finna í þjónustu leit sem er að finna til vinstri á hverri vefsíðu.