Send Page

 

 

Kayak


Ef þig langar í alvöru ævintýri í nálægð við náttúruna þá er kayak ferð á Austurlandi eitthvað fyrir þig. Það er hægt að fara á kayak viða um landið á sjó, vötnum og ám. Það er frábært að sigla um á kayak í faðmi Austfiskra náttúru með fallegt ústýni Austfjarðanna sem tignarleg fjöll umlykja í öllum stærðum og gerðum. Hægt er að njóta dýralífsins fylgjst með fuglalífinu sem er mjög fjölbreitt og oftar en ekki eru það selirnir sem fylgjast forvitnir með ferðamönnum.


Það eru nokkrar kayak leigur á Austurlandi þær er að finna á Seyðisfirði, og  Norðfirði  Þar færðu rétta útbúnaðinn, tilsögnina og góða leiðsögn. Að sigla um á kayak veitir manni ótrúlegt frelsi og er eitthvað sem allir ættu að prófa allavega einu sinni á lífsleiðinni.