Send Page

Jeppa- & jöklaferðir


Jeppaævintýri á upphækkuðum sérútbúnum fjórhjóladrifnum bílum er tilvalin leið til að kanna óbyggðir Austurlands. Að aka um undir leiðsögn lærðra leiðsögumanna sem þekkja svæðið vel er sannarlega ógleymanleg og spennandi upplifun. Eins og á fleiri stöðum á Íslandi er hægt að aka um hálendi Austurlands bæði á sumrin og veturnar því snjórinn er ekki hindrun fyrir þessa öflugu bíla.


Þvert á móti þá eru þessi frábæru ökutæki jafn góð í snjó en það er einmitt hægt að finna snjó allt árið á Asuturlandi einfaldlega með því að heimsækja stærsta jökul í Evrópu Vatnajökul. Hægt er að fara með jeppa upp á jökulinn, njóta magnaðs útsýnis frá jöklinum, slaka á og jafnvel skreppa á veitingahús í jaðri jökulsins. Fyrir þá sem vilja meira fjör geta svo farið á snjósleða eða jafnvel á skíði í snjónum.

Jeppar eru þægileg og skemmtileg leið til að ferðast og við mælum með því prófa þennan spennandi ferðamáta til að fá meira út úr heimsókn þinni til Austurlands.


Frekari upplýsingar er að finna í þjónustu leit sem er að finna til vinstri á hverri vefsíðu.