Send Page

Golf


Skelltu þér í golf út á landi, njóttu kyrrðarinnar og hreina loftsins á meðan þú spilar golf í náttúrunni á Austurlandi. Á Austurlandi eru átta golfvellir staðsettir víða um fjórðunginn, bæði er að finna 9 og 18 holu velli með mjög fallegu og spennandi umhverfi. Vellirnir eru sérstakir fyrir staðsetningar sínar og fagurt umhverfi og oft frábært veður. Sumir vellirnir liggja nálægt sjónum, milli tignarlegra fjalla, inn í gasi grónum dölum og meðfram ám.


Það eru 7 starfandi golfklúbbar á Austurlandi sem sjá um rekstur golfvalla, golfskála og að halda golfvöllunum í sem bestu ásigkomulagi hverju sinni. Það eru starfandi golfklúbbar á Fljótsdalshéraði, Eskifirði, Norðfirði, Seyðisfirði, Djúpavogi, Hornafirði og Reyðarfirði. Klúbbarnir halda mörg spennandi golfmót á hverju sumri og eru þau af öllum stærðum og gerðum. Á Austurlandi er hægt að finna glæsileg æfingarsvæði, flotta golfskála, spennandi brautir og krefjandi velli sem ættu að höfða til allra sem stunda golf.


Frekari upplýsingar er að finna í þjónustu leit sem er að finna til vinstri á hverri vefsíðu.