Send Page

Fuglaskoðun


Ísland er svo sannarlega paradís fyrir þá sem hafa áhuga á fuglaskoðun og er Austurland þar alls engin undantekning. Milljónir farfugla koma í hópum til Austurlands á ári hverju, ferðast sumar tegundir þúsundir kílómetra til að útbúa sér hreiður hér á sumrin. Margar tegundir eru staðfuglar á meðan farfuglarnir stoppa hér aðeins á sumrin til að afla sér fæðu og búa sér til hreiður. Það eru mjög margar og fjölbreittar fuglategundir á Austurlandi, en þar er að finna fjölda af andartegundum og heiðarfuglum, gæsum, svönum, sjávarfuglum og vaðfuglum. En sú fuglategund sem laðar að sér flesta ferðamenn á Íslandi er án efa Lundinn og er hann einnig að finna á Austurlandi. Lundin flyst til Íslands á hverju sumri til að útbúa sér hreiður og fæða ungana. Hreiðurgerðin byrjar í endan á maí og nær til endan á ágúst en þá fara þeir aftur af landi brott.


Sú fuglategund sem er hvað algengust við strendurnar er Teista, Álka, Lundi, Rita, Fýll og Hafsúla. Á Austurlandi er að finna frábæra staði til fuglaskoðunar staðir eins og Hafnarhómi í Borgarfirði Eystri þar sem hægt er að komst mjög nálægt Lundanum.og fylgjast með hreiðurgerð hans. Hólmanes í Reyðarfirði, Skrúður við Fáskrúðsfjörð, Papey við Djúpavog, Friðland í óslandi Hornafirði og margir aðrir staðir eru frábærir fyrir þá sem hafa áhuga á fuglaskoðun.


Frekari upplýsingar er að finna í þjónustu leit sem er að finna til vinstri á hverri vefsíðu.